Afritun
SecurStore afritunar- og endurheimtarlausnin bíður upp á aukið öryggi á viðráðanlegu verði, á tímum þegar að stjórnendur í hvaða rekstri sem er, eru að leita leiða til meiri hagkvæmni í rekstri. Ekki er lengur þörf á einhæfri vinnu við að halda utan um segulbandalausnir, koma segulböndum úr húsi og leita á segulböndum að gögnum sem hafa horfið eða skemmst. SecurStore afritunar og endurheimtarlausnin hentar vel fyrir hvaða fyrirtæki eða stofnanir sem er, þar sem að skjót endurheimt og öryggi skipta máli.
ISO 27001 vottunin er mikilvægur hlekkur í SecurStore afritunar- og endurheimtarlausninni. Vottunin nær allt frá rekstri gagnavera SecurStore til samskipta við viðskiptavini, en hagsmunir viðskiptavina eru hafðir í hávegum hjá SecurStore.

