Eiginleikar
Einstakir eiginleikar SecurStore afritunarinnar eiga sér fáa líka. Hugbúnaðinn þarf aðeins að setja upp á einni vél á hverju staðarneti og því ekki þörf á að setja upp afritunarhugbúnað á öllum þeim vélum sem þarf að afrita. Þetta hefur mikinn vinnusparnað í för með sér og auðveldar allt viðhald og breytingar.
Afritun á „virtual“ umhverfum er einstök þar sem ekki þarf að setja upp hugbúnað á sérhverja „virtual“ vél, en slíkt hefði í för með sér að sameiginlegir þættir þjónanna svo sem innra minni o.þ.h. drukkna í álagi frá afritunarhugbúnaði. Fyrir VMware afritun þá afritar og endurheimtir SecurStore bæði ESX –inn sjálfan sem og einstakar „virtual“ vélar og afritun fyrir Hyper V fer fram með sambærilegum hætti.
Hvort sem um er að ræða allan algengan tölvupóst eins og Microsoft Exchange, Lotus Notes, Outlook eða GroupWise eða innri vefi eins og SharePoint, þá getur notandi SecurStore afritunar- og endurheimtarþjónustunnar hvort heldur afritað og endurheimt einstök „item“ eða gagnagrunninn í heild sinni. Algengustu endurheimtar tilvikin eru þegar að einstökum skjölum, tölvupóstum o.þ.h. hefur óvart verið eytt og er því mikilvægt að unnt sé að endurheimta slík einstök skjöl eða skeyti án þess að eyða mörgum klukkustundum í að endurheimta gagnagrunn í heild sinni.SecurStore afritunar og endurheimtarlausnin er heilstæð lausn sem innheldur alla helstu hefðbundna eiginleika sem snúa að þjöppun, útilokun tvíafrita, bandvíddar bestun, samfellda breytingaafritun og „delta blocking“, sem þannig tryggir að gagnamagn það sem viðskiptavinur greiðir fyrir er eins lágt og frekar er unnt.

