Öryggi
Afritunar- og endurheimtarþjónusta SecurStore, fullnægir kröfum flestra gæðastaðla, þ.á.m. PCI, HIPAA, MIFID, Basel II og Sarbanes-Auxley um varðveislu dulkóðaðra afrita í öruggri geymsla fyrir utan starfstöð fyrirtækis eða stofnunar. Með þessu, eru skilyrði uppfyllt um meðferð viðkvæmra persónu eða viðskiptaupplýsinga í gegnum allt afritunar eða endurheimtarferlið.
Áður en að afrit gagna yfirgefur starfsstöð viðskiptavinar eru gögnin dulkóðuð og eru þannig bæði í flutningi og í geymslu hjá SecurStore. Hægt er að velja um AES 128, 192 eða 256 bita dulkóðun og lykilorðavernd. Tapist dulkóðunarlykilinn hefur aðgangur að afritum tapast, en með þessu er tryggt að einungis handhafar dulkóðunarlykils hafi aðgang að afritum gagnanna.Gögn viðskiptavinar flytjast með sjálfvirkum hætti af viðkomandi starfstöð á öruggar diskastæður í gagnaveri SecurStore, þaðan sem öll gögn eru spegluð yfir á sambærilegar diskastæður á öðrum stað. Viðskipavinir SecurStore geta því verið öruggir um að gögn þeirra eru örugg og aðgengileg hvenær sem þeir þurfa á þeim að halda.SecurStore hugbúnaðurinn og afritunarbúnaðurinn býr yfir samskiptareglum sem tryggja að engin óviðkomandi hafi aðgang að viðkomandi gögnum. Til þess að gera þetta eru notuð fjögur kerfi sem einkenna viðskiptamenn, þ.á.m. viðskiptamannanúmer, dulkóðunarlykill, persónukóði og sér uppsett IP tala.

