ISO-27001

Gagnaöryggi skiptir sífellt meira máli þegar að kemur að upplýsingatækni. Meira af upplýsingum eru nú geymd í rafrænu formi og ný tækni sem kemur með internetinu og tölvupósti hefur ýtt þeirri þróun áfram. Hjá SecurStore eru ekki aðeins geymd gögn sem varða fyrirtækið sjálft eða starfsmenn þess, en einnig viðkvæm gögn viðskiptavina SecurStore og einstaklinga sem tengjast þeim.

Að rafrænum gögnum stafar sífellt meiri hætta. Lög um meðferð upplýsinga gera sífellt meiri kröfur og hakkarar eru orðnir tæknivæddari en áður. Af þeim sökum hefur SecurStore þurft að bregðast við. SecurStore og starfsmenn þess eyða meiri kröftum í að fylgjast með upplýsingaöryggi og hluti af því hefur falist í að fá ISO 27001 vottun um stjórnkerfi upplýsingaöryggis, sem greinir, stýrir og takmarkar þá hættu sem rafrænum gögnum stafar reglulega ógn af. Árlega er starfsemi SecurStore tekin út af BSI í Bretlandi.

Markmiðið með öryggisreglum, mælikvörðum og stöðlum er að gæta trúnaðar, upprunaleika og tryggja að upplýsingar séu aðgengilegar þegar að á þarf að halda.