Endurheimt
Þegar að áfall hefur átt sér stað, þá eru til betri leiðir en að leita að samskonar þjóni og sá eldri var og endurheimta gögn á hann. SecurStore bíður upp á leiðir til þess að mæta áföllum í rekstri upplýsingakerfa. Þessar leiðir eru breytilegar eftir stærð og eðli fyrirtækja eða stofnana allt frá viðbrögðum við tiltölulega smávægilegu áfalli til meiriháttar hamfara. Innifalið í lausninni eru eiginleikar sem gera notendum kleift að geyma eintak af afriti á eigin staðarneti sem hentar sérstaklega vel fyrir gögn sem mikil krafa er gerð um skjóta endurheimt á. Þá er hægt að fá viðbótarþjónustu sem felst í endurheimt á heilum þjóni á „virtual“ þjón sem settur hefur verið upp af SecurStore auk þess sem að SecurStore bíður upp á að reka í eigin gagnaveri varaþjóna sem eru til taks ef meiriháttar áfall verður hjá notanda.

