Eintak á staðarneti
Þegar þörf er á órofa rekstri upplýsingakerfa er skynsamlegt að nota tól í SecurStore lausninni sem bíður notanda að geyma afrit af tilteknum gögnum á eigin staðarneti, en með því er unnt að endurheimta á staðarnetshraða ef gagnatap eða brenglun hefur átt sér stað. Með þessum hætti er unnt að fá mikilvægustu kerfin aftur í notkun á mun skemmri tíma en ella.
Hægt er að stilla þennan eiginleika með þeim hætti að hann eigi aðeins við tiltekin gögn sem talin eru sérstaklega mikilvæg. Þegar að afrit er tekið í fyrsta skipti, er afrit sent á diska á staðarnetinu, en síðan eru aðeins breytingar sendar á staðarnets eintakið. Hægt er að setja staðarnets afritunina upp á Windows, Linux og MAC. Hafa ber í huga að þegar að staðarnetseintak er notað eru gögnin alltaf send líka í gagnageymslu SecurStore.

