10 ástæður til að gerast endursöluaðili

  1. Markaðurinn stækkar sífellt: Með sífellt vaxandi gagnamagni og aukinni vitund um mikilvægi þess að koma afriti af gögnum úr húsi, þá er markaðurinn fyrir afritun gagna yfir netið mjög spennandi.
  2. Þjónustan á erindi til allra: Öll fyrirtæki og stofnanir þurfa á gagnaafritun að halda. Mikilvægi hraðrar endurheimtar eykst sífellt þar sem tölvugögn gegna sífellt mikilvægara hlutverki í rekstri.
  3. Segulbandaafritun er úrelt: Segulbandaafritun er hægvirk, kallar á mikla einhæfa vinnu tæknimanna auk þess sem margs konar falin kostnaður fellur á slíka þjónustu.
  4. Skalanleiki: SecurStore þjónustan stækkar eftir þörfum viðskiptamanna þinna. Ekki kemur til fjárfestingar með reglubundnu millibili þegar að viðkomandi notandi hefur sprengt utan af sér fyrirliggjandi afritunarbúnað.
  5. ISO 27001: Með því að bjóða viðskiptavinum þínum upp á SecurStore afritunar- og endurheimtarþjónustu ertu að bjóða þeim upp á vottaða þjónustu sem fylgir ströngustu öryggiskröfum og stöðlum.
  6. Skerðu þig úr frá meðalmennskunni: SecurStore afritunar- og endurheimtarþjónustan á fáa sína líka. Með því að bjóða upp á SecurStore bíður þú upp á þjónustu sem er skrefi framar flestum öðrum.
  7. Bestu verkferlar: Afritun og endurheimt yfir netið er það sem almennt er talið vera bestu verkferlar í dag. Ef þú er með rétta hugbúnaðinn og vélbúnaðinn á bakvið lausnina ásamt því að vera með vottaða þjónustu, getur þú óhræddur boðið þínum viðskiptamönnum upp á bestu fáanlegu þjónustu.
  8. Hagkvæmni:  Þar sem  aðeins er greitt fyrir það gagnamagn sem vistað er hjá SecurStore, getur þú verið fullviss um að bjóða viðskiptavinum þínum hagkvæmustu afritunarþjónustu sem völ er á.
  9. Fyrirliggjandi viðskiptavinur: Þetta er þjónusta sem á erindi til alls viðskiptamannahóps þíns og því ætti sala að vera frekar einföld og þægileg.
  10. Orðspor SecurStore: Á meðal viðskiptavina SecurStore eru mörg af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum á Íslandi. Orðspor SecurStore er ávísun á gæði.