Um SecurStore

Tölvuþjónustan SecurStore ehf. („SecurStore“) var stofnuð árið 1991 og hefur frá árinu 2005 sérhæft sig í að veita afburðaþjónustu í afritun og endurheimt yfir netið. Afritun SecurStore er mjög sveigjanleg, örugg og tryggir hraða endurheimt. Þjónustuver SecurStore er opið allan sólarhringinn allt árið um kring.

Með nýjustu tækni í þjöppun og afritun á breytingum er tryggt að kostnaði við afritun er haldið í lágmarki sama hvort um er að ræða örfá GB eða hundruð TB. SecurStore afritun yfir netið hentar því fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum.Frá starfsstöð á Akranesi sinnir SecurStore þjónustu við viðskiptamenn um allan heim, en félagið rekur gagnaver bæði á Akranesi og í London.

Afritunarlausn SecurStore inniheldur nýjustu tækni svo sem samfellda afritun, afritun á póstþjónum niður á einstök skeyti eða dagbókaratriði. Þá er lausnin tvískipt að því leyti að unnt er að geyma þann hluta gagna viðskiptavinar sem ekki er krafist skjótrar endurheimtar, á viðeigandi miðlum til lækkunar á kostnaði.SecurStore er vottað skv. ISO 27001 um stjórnkerfi upplýsingaöryggis, sem hjálpar til við að greina, stjórna og draga úr hættum sem að upplýsingatækni stafa, á hverjum tíma.SecurStore afritun og endurheimt keyrir á Microsoft, Mac og Linux og styður auk þess AS 400 og Unix.

SecurStore afritunar og endurheimtarlausnin hentar sérlega vel í öllu sýndarveruleika umhverfi svo sem VMware og Hyper V auk þess sem að afritun á Exchange, Lotus Notes, SharePoint, SAP er einstaklega hentug. Verndun og stuðningur við gagnagrunna svo sem SQL og Oracle er margverðlaunuð í Asigra lausninni sem SecurStore keyrir á.