Ummæli viðskiptavina
Sem fyrirtæki sem spilar stórt hlutverk í heilsu heillar þjóðar, þarf Veritas Capial á afritunar og endurheimtarþjónustu sem stenst ítrustu kröfur. Þegar að SecurStore varð á vegi okkar þá uppfylltu þeir allar okkar þarfir bæði hvað varðar öryggi og rekstur. Á hverjum degi erum við undir eftirliti birgja og eftirlitsstofnana. Við getum því ekki tekið neina áhættu varðandi heilsu gagna okkar. Hreggviður Jónsson |
"Að fara úr hefðbundinni segulbandalausn í SecurStore netafritunarlausnina var fljótlegt og einfalt. Mjög fljótt sáum við mikin sparnað í hagræðingu hjá okkar eigin starfsfólki sem ekki lengur þurfti að hafa áhyggjur af meðhöndlun segulbanda. Frá höfuðstöðvum okkar getum við nálgast gögn frá hvaða bor eða stafstöð sem er, hvenær sem er." Ragnheiður Jónasdóttir |
"Með því að nota langtímageymslu SecurStore lausnarinnar getum við geymt mikið magn af gögnum sem geyma þarf til langs tíma á hagkvæman hátt en á sama tíma nýtt okkur þá kosti sem að netafritun hefur fram yfir hefðbundnar segulbandalausnir." Brandur Sigurjónsson |
"Við völdum SecurStore þar sem að þjónusta þeirra dró verulega úr áhættu tengdum mannlegum mistökum tengdum meðhöndlun segulbanda, auk þess sem að þjónusta þeirra gerði okkur kleift að vernda gögn frá skrifstofum okkar út um allann heim, sem að við gátum stýrt frá höfuðstöðvum okkar á Íslandi. Þá sáum við mjög fljótt að með því að greiða aðeins fyrir þau gögn sem við vorum að vernda gátum við sparað okkur umtalsverða fjármuni." Rúnar Bjarnþórsson |
|
"Eftir að hafa farið í gegnum ítarlegar prófanir vissum við að við gátum treyst afritunarþjónustu SecurStore. Prófanirnar sýndu að SecurStore gat tekið þær birðar af herðum okkar að sjá sjálfir um afritun. Verndun gagna okkar var tryggð og gögnin aðgengileg á öllum tímum." Ólafur Róbert Rafnsson |

