Toyota keyrir á SecurStore |
9. March 2009 |
|
Toyota Ísland, umboðsaðili Toyota og Lexus bifreiða á Íslandi hefur ákveðið að nota SecurStore afritunar- og endurheimtarlausina til að vernda mikilvægustu viðskiptagögn félagsins. Toyota er langstærsti innflutningsaðili á bifreiðum á Íslandi með um 25% markaðshlutdeild. „Hjá Toyota Ísland er það gríðarlega mikilvægt að hægt sé að endurheimta þjóna innan skilgreindra tímamarka til þess að koma veg fyrir ófyrirséð tjón vegna áfalla eða truflana í rekstri tölvukerfa, segir Júlíus Eyjólfsson, tæknistjóri Toyota Ísland. „Bare Metal Restore ásamt því að unnt er að geyma afrit á staðarneti gerir það að verkum að við getum endurheimt á staðarnetshraða hvaða þjón sem er og erum ekki bundnir af því að útvegna nákvæmlega eins þjón og þann sem hrundi. Þá gefur tvískipt gagnageymsla okkur færi á því að geyma myndir af gagnagrunnum á ódýrum miðli til þess að uppfylla lög og reglur. SecurStore sérhæfir sig í að bjóða upp á sjálfvirka vefafritunar og endurheimtarþjónustu. Hugbúnaðar er settur upp á einni vél á hverju staðarneti og keyrir á Windows, Linux og Mac stýrikerfum, auk þess sem að hún styður UNIX og AS400. Víðtækur hugbúnaðarstuðningur gerir það að verkum að lausnin ræður við nánast hvaða upplýsingaumhverfi sem er. |
|
| Til baka | |

