Íslensk Ameríska telur SecurStore besta afritunarkostinn

10. June 2009

Íslensk Ameríska sem er eitt af elstu innflutnings og matvælaframleiðslufyrirtækum á Íslandi hefur valið SecurStore afritunar- og endurheimtarlausnina til að verja sín gögn. Stofnað árið 1964, hefur Íslensk Ameríska í áratugi verið einn stærsti innflytjandi af neytendavöru og haft á sínum snærum stór vörumerki eins og Proctor& Gamble, Campell‘s, BKI, hershey‘s, Titleist, Ping, Bacardi og Martini ásamt því að vera einn af stærstu matvælaframleiðendum á landinu með kaupum á Frón, ORA og Myllunni.

Hjalti Nielsen framkvæmdastjóri Frón, sem hafði umsjón með vali á afritunarþjónustu fyrir samstæðuna: Íslensk Ameríska er með starfsemi á mörgum stöðum og flókið upplýsingaumhverfi. Það var því mikilvægt fyrir okkur að finna afritunar- og endurheimtarlausn sem hægt væri að stýra frá einum stað. Lausnin frá SecurStore sem byggir á því að hugbúnaðurinn er aðeins settur upp á einni vél á hverju staðarneti, tryggir okkur vernd fyrir öll okkar kerfi. Þá skipti það miklu máli að lausnin ræður mjög auðveldlega við að afrita „virtual“ umhverfi, bæði í heild sinni og einstakar vélar.

Á jafn krítískum tíma og við erum að fara í gegnum um þessar mundir, þýddi að við skoðuðum allar mögulegar leiðir til afritunar og endurheimtar. SecurStore uppfyllti allar gæðakröfur okkar og okkur til undrunar var SecurStore mjög samkeppnishæft í verðum. Þá gaf ISO 27001 vottunin okkur aukna öryggistilfinningu fyrir því að afrita gögnin sjálfvirkt út fyrir starfsstöðvar okkar“

Til baka