Veritas Capital velur SecurStore til að vernda gögnin sín

14. September 2009

Veritas Capital, móðurfélag heilsufyrirtækjanna Vistor, Distica, Artasan og Ritara, hefur um langt skeið notað SecurStore endurheimtar og afritunarlausnina til þess að verja milljónir skráa í upplýsingakerfum félagsins. Fyrirtækin í Veritas Capital samstæðunni bera ábyrgð á markaðssetningu, birgðahaldi og dreifingu á heilsuvörum, lyfjum og fæðubótarefnum, auk þess sem að á borði félagsins geta verið viðkvæmar heilsuupplýsingar.

„Sem fyrirtæki sem spilar stórt hlutverk í heilsu heillar þjóðar, þarf Veritas Capital á afritunar og endurheimtarþjónustu að halda sem stenst ítrustu kröfur. Þegar að SecurStore varð á vegi okkar þá uppfylltu þeir allar okkar þarfir bæði hvað varðar öryggi og rekstur. Á hverjum degi erum við undir eftirliti birgja og eftirlitsstofnana. Við getum því ekki tekið neina áhættu varðandi heilsu gagna okkar.“ Segir Hreggviður Jónsson, eigandi og forstjóri Veritas Capital.

„Veritas Capital byrjaði sem lítill viðskiptavinur hjá okkur þegar að við vorum að byrja afritunarþjónustu okkar yfir vefinn. Við höfum vaxið saman og verndum nú öll gögn félagsins. Við hjá SecurStore erum miög stoltir með að hafa þau fyrirtæki sem tilheyra Veritas Capital samstæðunni á meðal viðskiptavina okkar sem á móti sýnir þann styrk og það traust sem SecurStore nýtur á markaðnum,“ segir Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri SecurStore.

Til baka