Landmælingar Íslands endurnýja samstarf sitt við SecurStore

5. October 2009

SecurStore og Landmælingar Íslands hafa endurnýjað samstarf sitt um afritun og endurheimt á gögnum Landmælinga. Markmið Landmælinga Íslands er að tryggja að ávallt séu til aðgengilegar og áreiðanlegar staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um allt Ísland. Landmælingar reka eitt stærsta safn á Íslandi með landfræðilegum upplýsingum, hvort heldur sem er landafræðileg kort, gagnagrunnar, loftmyndir eða gervitunglamyndir, sem eigarætur að rekja áratugi eða árhundruð aftur í tímann og notar í þeim tilgangi nýjustu landupplýsingatækni.

„Gögnin okkar eru hjartað í stofnuninni og án þeirra er engin stofnun. Í mörg ár höfum við nýtt okkur þjónustu SecurStore og verið framúrskarandi ánægðir með þjónustu þeirra. Í niðursveiflu eins og íslenskt þjóðfélag er að ganga í gegnum um þessar mundir, þá skoðuðum við auðvitað aðra möguleika til hagræðingar, en niðurstaða okkar var sú að ekki væri unnt að gera þetta með hagkvæmari hætti án þess að setja gögn okkar í verulega hættu", segir Brandur Sigurjónsson, Tæknistjóri Landmælinga

„Enn einu sinni hefur SecurStore afritunar og endurheimtarlausnin sannað gildi sitt. Landmælingar Íslands eru ein af virtustu stofnunum sinnar tegundar í Evrópu og þó víðar væri leitað. Það er því mikilvæg viðurkenning fyrir SecurStore að hafa framlengt samning okkar við Landmælingar, en samstarf okkar hefur varað um langt skeið. Viðskiptavinum sem þykir vænt um gögnin sín, líður vel með að skipta við fyrirtæki sem ræður við flókin upplýsingakerfi og ISO 27001 vottunin um stjórnkerfi upplýsingaöryggis, gefur þeim aukna tryggingu.“ Segir Örn Gunnarsson framkvæmdastjóri SecurStore.

Til baka