SecurStore opnar nýjar skrifstofur í London

11. February 2010

SecurStore, sem sérhæfir sig í vefafritun og endurheimt yfir vefinn, hefur í dag opnað nýjar skrifstofur í Vestur London, nánar tiltekið í Stockley Business Park. Nýju skrifstofurnar eru einstaklega vel staðsettar með góðum aðgangi til miðborgar London auk þess að vera í nágrenni við M4 og suðaustur hlutans. Þá eru skrifstofurnar í nágrenni Heathrow, þannig að allt aðgengi að starfsemi SecurStore fyrir núverandi og nýja viðskiptavinu, hvort sem er í Bretlandi eða annars staðar er mjög gott.

Afritunar og endurheimtarlausnin frá SecurStore bíður upp á mikla hagkvæmni þar sem að tæknimenn fyrirtækja og stofnanna þurfa ekki að hafa daglegar áhyggjur af því hvernig afritun er að ganga, þar sem að sjálfvirk skýrslugjöf heldur þeim upplýstum um gang afritunar. Þá er með mjög einföldum hætti unnt að framkvæma endurheimtarpróf án þess að eyða miklum tíma eða peningum í það.

"Árið 2010 hefur farið af stað með mjög spennandi hætti hjá SecurStore í London“, útskýrir Alexander Eiríksson, rekstrarstjóri hjá SecurStore UK ltd. „Nýju skrifstofurnar hjá okkur tákna mikilvægan áfanga í rekstri SecurStore og sýna hvernig SecurStore hefur vaxið og heldur áfram að þróast. Samstarfsaðili okkar í hugbúnaðargerð Asigra hefur nýverið verið valin á meðal 100 svölustu „Cloud Computing“ aðila árinu 2010 af CRN. Með þetta í veganesti, nýjar skrifstofur og nýja viðskiptavini, lítum við með bjartsýni á árið 2010.“

Til baka